Sítrónukaka
- Hitið ofninn í 180 gráður og setjið smjörpappír í brauðform.
- Setjið sykur og sítrónubörk í skál og hrærið vel saman með sleif þannig að sykurinn og börkurinn blandist vel saman.
- Bætið smjöri saman við og hrærið þar til blandan verður ljós og létt.
- Bætið eggjum saman við, einu í senn og hrærið vel á milli. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni.
- Bætið safa úr sítrónu, vanilludropum og sítrónudropum og hrærið saman.
- Setjið hveiti, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið saman. Blandið því saman við ásamt grískri jógúrt og mjólk. Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og skafið hliðarnar á skálinni.
- Setjið deigið í brauðformið og bakið í 50 mínútur, eða þar til tannstöngull kemur þurr upp úr miðju kökunnar. Leyfið kökunni að kólna örlítið áður en þið setjið síróp og glassúr ofan á.
Sítrónusíróp
- Setjið vatn og sykur í pott yfir meðal háan hita og hitið þar til vatnið fer að sjóða. Látið sjóða í um eina mínútu og hrærið. Takið pottinn af og blandið sítrónusafa saman við.
- Penslið sírópinu ofan á kökuna og leyfið henni að standa á meðan glassúrinn er útbúinn.
Glassúr
- Setjið flórsykur, mjólk og sítrónusafa í skál og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Ef ykkur finnst glassúrinn of þunnur þá bætið þið meiri flórsykri saman við, ef hann er of þykkur bætið örlítið af mjólk saman við.
- Setjið glassúrinn yfir kökuna.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir