Þegar maður steikir grillost á pönnu með chili og hunangi gerist eitthvað magnað. Mögulega ávanabindandi, svo gott! Þessi réttur verður á vikulega matseðlinum næstu vikurnar. Það er einfalt að gera stökku hrísgrjónin en ég mæli með að nota afgangs hrísgrjón t.d. frá deginum áður. Jógúrtsósan með dijon og hunangi bindur þetta svo allt saman og bragðlaukarnir dansa.
| soðin hrísgrjón | |
| olía | |
| • | garam masala, salt og pipar |
| grill- og pönnuostur frá Gott í matinn | |
| • | chilikrydd, t.d. chili explosion |
| hunang | |
| • | olía til steikingar |
| • | salat eftir smekk |
| • | gúrka |
| • | tómatar |
| • | avocado |
| • | granateplafræ |
| • | ferskur kóríander, má sleppa |
| hrein Óskajógúrt | |
| dijon sinnep | |
| hunang, 1-2 msk. | |
| • | cummin krydd |
| • | salt og pipar |
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir