Menu
Sætar kartöflur fylltar með kjúklingi, sveppum og stökku beikoni

Sætar kartöflur fylltar með kjúklingi, sveppum og stökku beikoni

Frábær réttur fyrir unnendur sætra kartaflna. 

Innihald

1 skammtar
sætar kartöflur
Kjúklingabringur (smátt skornar)
pakki sveppir
laukar
bréf beikon
rjómi frá Gott í matinn
poki Pizzaostur frá Gott í matinn
Fetakubbur frá Gott í matinn
Íslenskt smjör til steikingar
Sjávarsalt og pipar

Skref1

  • Stillið ofninn á 200°C – blástur.

Skref2

  • Skerið sætu kartöflurnar í tvennt þannig að þær séu ílangar.
  • Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og leggið kartöflurnar niður (hýðið upp).
  • Penslið sætu kartöflurnar með ólífuolíu og stráið sjávarsalti yfir.
  • Setjið þær inn í ofn í 50 mínútur á meðan fyllingin er útbúin.

Skref3

  • Skerið kjúklinginn í passlega stóra bita og steikið þar til hann hefur brúnast.
  • Skerið beikonið smátt og bætið saman við kjúklinginn.
  • Setjið saxaða sveppi og lauk út á pönnuna í lokin.
  • Kryddið til með salti og pipar.
  • Hellið 1 dl af rjóma út í fyllinguna.

Skref4

  • Takið sætu kartöflurnar út úr ofninum og snúið þeim við.
  • Skafið innan úr sætu kartöflunum og setjið út í fyllinguna á pönnunni. Passið að skilja smá eftir í köntunum til þess að kartaflan rifni ekki og fyllingin leki ekki út fyrir.
  • Setjið núna fyllinguna ofan í hýðið og stráið muldum fetakubbi og pizzaosti yfir allt saman.
  • Bakið þetta áfram í ofninum þar til osturinn er orðinn fallega gylltur.

Höfundur: Tinna Alavis