Menu
Rjómapasta með risarækjum og hvítlauk

Rjómapasta með risarækjum og hvítlauk

Þetta ljúffenga risarækjupasta er eins og besta veisla fyrir bragðlaukana.

Innihald

4 skammtar
Risarækjur
Pasta (spagettí eða tagliatelle)
Olía
Hvítlauksrif
Ósaltað smjör
Salt og pipar
Hvítvín
Rjómi eða matreiðslurjómi frá Gott í matinn
Rifinn parmesanostur
Smátt söxuð steinselja

Skref1

  • Pastað er soðið í potti eftir leiðbeiningum á pakkanum.

Skref2

  • Olía er hituð á pönnu og rækjurnar steiktar ásamt salti og pipar í um 2 mínútur á hvorri hlið eða þar til þær eru orðnar bleikar, þá eru þær teknar af pönnunni.

Skref3

  • Í olíuna fer smjörið og hvítlaukurinn og látið málla í smá stund á vægum hita.

Skref4

  • Næst fer rjóminn og hvítvínið á pönnuna og suða látin koma upp.
  • Þegar suðan er komin upp er rifnum parmesan osti bætt út í.

Skref5

  • Þegar rjóminn hefur þykknað aðeins þá er rækjunum bætt aftur út á pönnuna og steinselju stráð yfir ásamt salti og pipar eftir smekk.

Skref6

  • Í lokinn er pastað sett á diska, rjóma og rækjublandan er sett yfir pastað.
  • Einnig er fallegt að skreyta diskinn með steinselju og meiri parmesanosti.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir