Menu
Risarækjupasta með Óðalsostum

Risarækjupasta með Óðalsostum

Einstaklega gott pasta sem hentar bæði hversdags og við fínni tilefni.

Innihald

4 skammtar
olía
hvítlauksrif
laukur
risarækjur, ósoðnar (16-20)
kirsuberjatómatar
spagettí
spínat
ólífuolía
Óðals Tindur (magn eftir smekk)
baguette brauð
salt og pipar
chiliflögur eftir smekk

Aðferð:

  • Skolið rækjurnar og þerrið.
  • Sjóðið spagettí í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.
  • Hitið olíu eða smjör á pönnu, skerið lauk og hvítlauk afar smátt og steikið þar til laukurinn er mjúkur í gegn.
  • Skerið risarækjurnar í litla bita og bætið út á pönnuna, kryddið með salti, pipar og chiliflögum eftir smekk.
  • Steikið í 3 mínútur eða þar til rækjurnar eru bleikar að lit.
  • Bætið kirsuberjatómötum út á pönnuna og kryddið með salti, pipar og chiliflögum eftir smekk.
  • Hellið pastavatninu frá og bætið spagettíinu út á pönnuna ásamt spínatinu, sáldrið ólífuolíu út á réttinn og rífið duglega af Tindi yfir.
  • Berið fram með góðu brauði.

Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir