Menu
Rabarbara trifle

Rabarbara trifle

Ég sá svipaða pælingu á netinu um daginn og gat ekki hætt að hugsa um hana fyrr en ég væri búin að prófa mína útfærslu. Nú er nóg af rabarbara alls staðar en ég greip frosinn, niðurskorinn rabarbara úr frystinum síðan um daginn og úr varð þessi dýrindis eftirréttur!

Uppskrift dugar í um 5 glös/skálar

Innihald

5 skammtar

Bakaður rabarbari

niðurskorinn rabarbari (ferskur eða frosinn)
sykur
vanillustöng
sítróna (safinn)

Kröns

haframjöl
hveiti
púðursykur
smjör (kalt, skorið í teninga)
salt

Mascarpone rjómi

mascarpone ostur frá Gott í matinn
rjómi frá Gott í matinn
flórsykur
vanillusykur

Bakaður rabarbari

  • Hellið rabarbaranum í stórt eldfast mót eða ofnskúffu og hitið ofninn í 180°C.
  • Dreifið úr sykrinum yfir, kreistið sítrónuna og skafið fræin úr vanillustönginni með því að kljúfa hana. Leyfið einnig vanillustönginni sjálfri að bakast með fyrir betra bragð.
  • Hrærið allt saman, setjið álpappír yfir og bakið í 40 mínútur.
  • Fjarlægið vanillustangirnar og hrærið öllu vel saman, getið aðeins stappað bitana svo úr verði gróft mauk.
  • Kælið alveg áður en þið setjið saman.

Kröns

  • Setjið allt í skál og klípið/hnoðið saman með höndunum.
  • Dreifið síðan úr á ofnplötu og bakið í 20 mínútur við 180°C.
  • Ég setti þetta inn með rabarbaranum og gott er að hræra aðeins í blöndunni á miðri leið.
  • Kælið alveg áður en þið setjið saman.

Mascarpone rjómi

  • Setjið allt í hrærivélina og þeytið saman þar til léttþeytt (samt þannig að blandan leki ekki til).

Samsetning

  • Setjið kúfaða matskeið af krönsi í botninn á hverju glasi, næst kúfaða matskeið af rabarbarablöndu og síðan um tvær matskeiðar af rjómablöndu. Dreifið aðeins úr hverju lagi fyrir sig og endurtakið.
  • Skreytið með því að setja smá meira kröns á toppinn og blóm að eigin vali.
Samsetning

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir