Menu
Quesadillas með Óðalsostum

Quesadillas með Óðalsostum

Einfaldur réttur þar sem Óðalsostarnir fá svo sannarlega að njóta sín.

Innihald

4 skammtar
stórar tortillur
hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
kjúklingur, eldaður
sólþurrkaðir tómatar
döðlur
Óðals Maribó
Óðals Gouda sterkur
sýrður rjómi frá Gott í matinn
ólífuolía
salsasósa
klettasalat
nachos flögur

Aðferð:

  • Rífið niður ostana.
  • Smyrjið helminginn af tortillavefjunni með rjómaosti.
  • Rífið niður kjúklingakjöt og og dreifið yfir smurða hlutann, ásamt smátt söxuðum sólþurrkuðum tómötum og smátt skornum döðlum.
  • Dreifið ostinum yfir.
  • Leggið vefjuna saman.
  • Hitið olíu sem þolir mikla steikingu á pönnu og setjið tortillavefjuna varlega á pönnuna.
  • Steikið í 1– 2 mínútur á hvorri hlið. Hvolfið vefjunni varlega með góðum spaða svo innihaldið fari ekki út um allt.
  • Berið fram með sýrðum rjóma, salsasósu, nachos flögum og smátt söxuðu klettasalati.

Höfundur: Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir