Menu
Púðursykurmarengs með rjóma og karamellu

Púðursykurmarengs með rjóma og karamellu

Gott er að setja á botnana daginn áður, en þar sem púðursykursmarengsbotnar eru svo léttir í sér er allt í góðu að gera það að morgni til þann daginn sem hún er borin fram.

Innihald

12 skammtar

Marengs:

eggjahvítur
púðursykur

Púðursykurskaramella:

púðursykur
rjómi frá Gott í matinn
smjör
Salt
vanilla

Púðursykursmarengs

  • Þeytið eggjahvíturnar og púðursykurinn þangað til blandan er orðin stíf og þétt.
  • Setjið smjörpappír á tvær bökunarplötur, skiptið marengsinum til helminga á hvora plötu fyrir sig og myndið jafnstóra hringi.
  • Gott er að strika eftir t.d hringlaga bökunarformi svo að botnarnir verði báðir jafn stórir.
  • Bakið við 150 gráðu hita í rúmlega 50 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þurr viðkomu.
  • Kælið botnana alveg áður en þið setjið á þá.

Púðursykurskaramella

  • Setjið smjör í pott og bræðið.
  • Bætið púðursykri saman við ásamt rjómanum, salti og vanilludropum og hrærið þar til sykurinn hefur náð að bráðna alveg.
  • Leyfið karamellunni að sjóða og hrærið stanslaust í rúmar 3 mínútur, eða þar til karamellan hefur náð að þykkna.
  • Ef ykkur finnst karamellan of þykk er gott að bæta örlitlu magni af rjóma saman við.
  • Setjið pottinn til hliðar og leyfið karamellunni að kólna.
  • Karamellan er einstaklega góð með allskyns kökum, marengs, súkkulaðiköku, ofan á smákökur og sandköku til dæmis.
Púðursykurskaramella

Samsetning

  • Setjið botn á kökudisk, þreytið rjóma og passið að hann sé alls ekki of þeyttur, setjið hinn botninn ofan á og karamellu yfir alla kökuna eða eins mikið og þið viljið.
  • Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir