Menu
Pizza með rauðrófum, Litla Dímon, valhnetum og hunangi

Pizza með rauðrófum, Litla Dímon, valhnetum og hunangi

Hér höfum við dásamlega „pizza bianca“ með hvítum botni, þar sem sætleiki rauðrófanna passar einstaklega vel með Litla Dímon, valhnetum og hunangi. Toppað með klettasalati og fersku timjani, ótrúlega góð samsetning!

Innihald

1 skammtar
pizzadeig, heimagert eða keypt
rauðrófur, forsoðnar eða ofnbakaðar (3-4 stk.)
sýrður rjómi frá Gott í matinn
rifinn mozzarella ostur frá Gott í matinn
Litli Dímon
valhnetur
nokkrar greinar ferskt timjan
klettasalat
fljótandi hunang
ólífuolía
salt
svartur pipar og flögusalt

Skref1

  • Ef notað er pizzastál eða pizzasteinn, hitið ofninn eins hátt og hann kemst, helst í 275-300°C. Hitið stálið eða steininn með ofninum í að minnsta kosti 30-45 mínútur og hafið það í næstefstu hillu ofnsins. Ef pizzan er bökuð á venjulegri ofnplötu, hitið ofninn í 220°C.
  • Skerið rauðrófurnar í sneiðar eða báta. Ef notaðar eru forsoðnar rauðrófur er gott að þerra þær vel með eldhúspappír. Ef notaðar eru ferskar rauðrófur, pakkið þeim inn í álpappír með örlitlu salti og bakið þar til þær eru mjúkar í gegn. Látið þær kólna aðeins, afhýðið og skerið í sneiðar eða báta.

Skref2

  • Mótið pizzuna með höndunum frekar en að nota kökukefli. Smyrjið sýrða rjómanum yfir botninn en skiljið kantinn eftir auðan.
  • Dreifið mozzarellaostinum yfir og raðið rauðrófum og bitum af Litla Dímon yfir pizzuna. Stráið örlitlu fersku timjani yfir og dreypið smá ólífuolíu yfir.
  • Bakið pizzuna þar til botninn er stökkur, kantarnir hafa tekið fallegan lit og osturinn bráðnað. Á vel heitu pizzastáli getur það tekið um 5 mínútur en á venjulegri ofnplötu allt að 15 mínútur. Ofnar eru misjafnir, svo fylgist vel með pizzunni á meðan hún bakast.

Skref3

  • Ristið valhneturnar örlítið á þurri pönnu og grófsaxið þær. Einnig er hægt að dreifa þeim yfir pizzuna síðustu 1-2 mínúturnar af bökunartímanum, en fylgist vel með þar sem þær geta brunnið hratt við háan hita.
  • Toppið nýbakaða pizzuna með ristuðum valhnetum, klettasalati, fersku timjani og hunangi. Kryddið með nýmöluðum svörtum pipar og örlitlu flögusalti og berið strax fram.

Höfundur: Helga Ragnarsdóttir