Menu
Pizza með mozzarella og basilíku

Pizza með mozzarella og basilíku

Ferskur mozzarella og basilíka eiga svo einstaklega vel saman og ekki síður á pizzu!

Nýjar Mozzarella kúlur með basilíku eru tilvaldar á pizzu en einnig í rétti eins og salöt, snittur, pasta- og ofnrétti og forrétti ýmiss konar. 

Uppskriftin dugar í fimm 10“ pizzur.

Innihald

5 skammtar

Pizzadeig:

hveiti
þurrger
salt
volgt vatn
ólífuolía

Álegg:

dósir Mozzarella kúlur með basilíku
rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
tómatar
grænt pestó
jómfrúar ólífuolía
pizzasósa
klettasalat
furuhnetur
Goðdala Feykir, rifinn
Fersk basilíka

Pizzadeig

  • Setjið hveiti, þurrger og salt í skál og blandið saman.
  • Hafið vatnið ylvolgt. Hellið því saman við þurrefnin ásamt olíunni og blandið saman með króknum.
  • Hnoðið að lokum aðeins saman í höndunum og setjið í skál sem búið er að pensla með matarolíu, veltið deiginu um, plastið og leyfið að hefast í um klukkustund.
  • Skiptið því síðan niður í 5 hluta og fletjið út áður en áleggið er sett á.

Samsetning

  • Hitið ofninn í 220°C.
  • Byrjið á því að smyrja pizzasósu yfir alla botnana (magn eftir smekk) og stráið rifnum pizzaosti þar næst yfir allt.
  • Næst má skera tómatana í sneiðar og raða þeim ásamt Mozzarella kúlunum með basilíku jafnt á pizzurnar.
  • Bakið við 220°C í um 12-15 mínútur og undirbúið annað álegg á meðan.
  • Blandið saman pestó og ólífuolíu og setjið óreglulega yfir pizzurnar þegar þær koma úr ofninum.
  • Að lokum má setja klettasalat, furuhnetur, rifinn Goðdala Feyki og ferska basilíku eftir smekk.
Samsetning

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir