Menu
Pizza með kartöflum, spergilkáli og gráðaosti

Pizza með kartöflum, spergilkáli og gráðaosti

Ég er varla á eini sem dettur í hug að elda flatbökur í lok vikunnar. Það er bæði fljótlegt og svo ef maður vandar valið á áleggjunum þá getur það verið alveg einstaklega ljúffengt.

Ef maður er alveg að brenna út á tíma - er auðvitað hægt að kaupa tilbúið deig út í búð. En það er líka auðvelt að gera sitt eigið pizzadeig.

Þrungin af bragði. Þessi er fyrir fullorðna fólkið - og er í uppáhaldi hjá mér.

Innihald

4 skammtar

Pizzadeig:

hveiti
volgt vatn
jómfrúarolía
þurrger
sykur
salt

Álegg:

hvítlauksolía (3-4 msk.)
soðnar kartöflur (2-3)
spergilkál
rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
gráðaostur frá Gott í matinn
salt og pipar

Pizzadeig

  • Setjið hveitið í skál, svo saltið og á eftir því olíuna.
  • Vekið gerið í volgu vatni ásamt sykrinum.
  • Þegar gerið er búið að freyða í um 15 mínútur er hægt að byrja að hella því varlega saman við.
  • Hnoðið vandlega í fimm til tíu mínútur.
  • Setjið svo viskastykki yfir og setjið til hliðar til að hefast í um klukkustund.

Samsetning

  • Penslið botninn með hvítlauksolíu.
  • Sáldrið rifnum pizzaosti yfir.
  • Raðið svo soðnum kartöflum í sneiðum og á milli spergilkáli í litlum bitnum.
  • Sáldrið svo nóg af gráðaosti á milli.
  • Bakið í eins heitum ofni og mögulegt er á flatbökusteini.
  • Það tryggir af botninn verði stökkur og ljúffengur.

Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson