Burrata ostur er einn af þessum sem lætur mann kikna í hnjánum. Það er svo gott að nota hann í ýmsa matargerð og á pizzur er hann guðdómlegur. Ég smakkaði fyrst Burrata ost í Friðheimum fyrir nokkrum árum og eftir það var ekki aftur snúið. Það hefur hins vegar reynst þrautinni þyngra að nálgast þessa dásemd en nú hefur Mjólkursamsalan hafið sölu á þessum osti í lausasölu og ég mæli með að þið laumið ykkur alltaf í eina, ef ekki fleiri dósir þegar hann er til í verslunum!
| • | pizzadeig að eigin vali |
| • | pizzasósa að eigin vali |
| • | oreganó krydd |
| • | rifinn pizzaostur frá Gott í matinn |
| • | grænt basil pestó, nokkrar teskeiðar |
| • | rautt chili pestó, nokkrar teskeiðar |
| • | klettasalat, ein lúka |
| piccolo- eða kirsuberjatómatar | |
| íslenskur burrata ostur | |
| • | balsamik gljái |
| • | fersk basilíka, söxuð |
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir