Menu
Piparmyntuostakaka með After eight

Piparmyntuostakaka með After eight

Piparmyntuostakakan er ótrúlega hátíðlegur og sívinsæll eftirréttur sem á alltaf við .

Innihald

10 skammtar

Botninn:

súkkulaðikex (t.d. Oreo eða annað kex með kremi á milli)
After eight plötur
brætt smjör
sjávarsalt

Fylling:

íslenskur mascarpone ostur við stofuhita (250 g)
rjómi
mjólk
Royal vanillubúðingur
piparmyntudropar/piparmyntuextract (má sleppa)
jólabrjóstsykursstarfir eða nokkrir piparmyntu brjóstsykursmolar
nokkrir dropar bleikur matarlitur (má sleppa)
After eight til að skreyta

Aðferð

  • Byrjið á að gera botninn. Setjið kexið og After eight í matvinnsluvél. Vinnið í fína mylsnu og hellið smjörinu og saltinu saman við. Geymið. 
  • Þeytið saman 5 dl af mjólk og allt búðingsduftið, setjið til hliðar. 
  • Þeytið mascarpone ostinn þar til hann verður mjúkur og léttur, hellið rjómanum saman við og þeytið þar til blandan er eins og léttþeyttur rjómi.
  • Þeytið þá lagaða vanillubúðinginn saman við þar til blandan er slétt og þykk.
  • Myljið brjóstsykurinn í fínt duft og bætið um 3 msk. af duftinu út í ostakökublönduna ásamt piparmyntudropunum og matarlit, ef þið notið. Geymið smá af duftinu til að skreyta með.
  • Þið getið annað hvort sprautað ostakökuna í lítil glös á fæti og borið fram fyrir hvern og einn eða sett hana í eina fallega glæra skál. 
  • Þegar ostakökunni hefur verið komið fyrir eins og á að bera hana fram er gott að kæla hana í ísskáp í um 2-4 klst.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir