Menu
Piparmyntudraumur í glasi með after eight

Piparmyntudraumur í glasi með after eight

Innihald

6 skammtar

Botn

Oreo Kexkökur

Skyrblanda

hreint skyr
rjómi, þeyttur
piparmyntu Stevia

Toppur

rjómi
After eight súkkulaði

Aðferð

  • Setjið Oreo kexkökur í matvinnsluvél og hakkið þar til þær verða fínmalaðar.
  • Setjið 1-2 msk af kexinu í hvert glas fyrir sig.
  • Þeytið rjóma og blandið honum saman við skyrið ásamt piparmyntu Stevíunni.
  • Hrærið þar til blandan verður mjúk og slétt.
  • Sprautið skyrblöndunni í hvert glas fyrir sig.
  • Þeytið restina af rjómanum og sprautið honum fallega ofan í hvert glas.
  • Skreytið með heilu eða hálfu After eight  piparmyntusúkkulaði.
  • Geymið í kæli þar til borið er fram.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir