Skref1
- Hitið ofninn í 170°C við yfir- og undirhita.
- Klæðið botninn á 20 cm smelluformi með bökunarpappír og lokið forminu utan um pappírinn. Vefjið álpappír utan um botn formsins til að draga úr hættu á að karamellan leki og setjið formið á bökunarplötu.
- Grófsaxið pekanhneturnar og leggið til hliðar.
- Setjið púðursykur, síróp, smjör og vanilludropa í lítinn pott. Hitið við meðalhita og hrærið þar til smjörið hefur bráðnað og sykurinn leyst upp.
- Hellið blöndunni í botn formsins og dreifið pekanhnetunum jafnt yfir.
- Leggið til hliðar á meðan kökudeigið er útbúið.
Skref2
- Blandið saman hveiti, maíssterkju, lyftidufti, matarsóda, salti og kanil í skál. Blandið vel saman og leggið til hliðar.
- Bræðið smjörið fyrir kökuna í litlum potti við meðalhita. Látið það krauma þar til það verður gullinbrúnt . Hrærið reglulega og gætið þess að það brenni ekki. Hellið smjörinu í skál og látið kólna örlítið.
- Bætið sykrinum saman við brúnaða smjörið og hrærið með písk.
- Bætið eggjunum út í, einu í senn, og hrærið þar til blandan hefur blandast vel saman.
- Bætið helmingnum af þurrefnunum saman við og hrærið varlega.
- Setjið því næst sýrða rjómann og vanilludropana út í.
- Bætið að lokum restinni af þurrefnunum saman við og hrærið þar til deigið hefur blandast vel saman.
Skref3
- Hellið kökudeiginu varlega yfir pekanhneturnar og sléttið yfirborðið.
- Bakið í miðjum ofni í um 45-50 mínútur, eða þar til prjónn sem stungið er í miðja kökuna kemur hreinn upp.
- Látið kökuna kólna í forminu í um 5 mínútur. Losið varlega með hníf meðfram hliðunum og opnið smelluna.
- Leggið kökudisk yfir kökuna og hvolfið henni varlega svo pekanhneturnar snúi upp. Fjarlægið botn formsins og bökunarpappírinn varlega svo að hneturnar detti ekki af.
- Látið kökuna kólna áður en hún er borin fram með þeyttum rjóma.
- Kökuna er best að geyma í loftþéttu íláti eða á kökudiski með loki svo hún haldist mjúk og fersk.
- Geymist vel í 3-4 daga.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir