Menu
Ostasalat með beikoni og chili

Ostasalat með beikoni og chili

Ostasalöt eru sívinsæl og gaman að leika sér með útfærslur af slíkum. Nýja 4 osta blandan frá Gott í matinn er svo geggjuð að ég varð að prófa að setja hana í slíkt salat. Útkoman var auðvitað guðdómleg eins og við var að búast! 

Innihald

1 skammtar
4 osta blanda frá Gott í matinn
Mexíkó kryddostur frá MS
beikon (stökkt)
blaðlaukur (eða 1/3)
pekanhnetur
brokkolí
pikklað chili
sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
majónes

Aðferð

  • Skerið Mexíkó ostinn í litla teninga og setjið í skál með 4 osta blöndunni.
  • Saxið beikon, blaðlauk, pekanhnetur, brokkoli og pikklað chili og setjið saman við ostana.
  • Hrærið sýrðan rjóma og majónes saman og blandið saman við önnur hráefni með sleikju.
  • Kælið fram að notkun og njótið með góðu kexi og/eða brauði.
  • Gaman er að bjóða upp á nokkrar mismunandi tegundir af kexi, snakki eða brauði með ostasalatinu!

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir