Menu
Ostafyllt brauðstangajólatré

Ostafyllt brauðstangajólatré

Undur ljúffengt ostajólatré og tilvalið til þess að fá smá tilbreytingu frá öllum sætindunum yfir hátíðirnar! Við eigum án efa eftir að gera þetta fyrir eitthvað af þeim jólaboðum sem við förum í, svo gaman að koma með eitthvað nýtt og skemmtilegt!

Innihald

1 skammtar
hveiti
sykur
salt
þurrger (11,8 g)
volgt vatn
ólífuolía
rifinn Cheddar ostur frá Gott í matinn

Hvítlaukssmjör

smjör
hvítlauksrif, rifin
salt
hvítlauksduft
pipar

Meðlæti

pizzasósa

Skref1

  • Setjið þurrefnin í hrærivélarskál með krókinn á og hellið vatni og ólífuolíu saman við og hnoðið í nokkrar mínútur.
  • Penslið stóra skál með matarolíu, veltið deigkúlunni upp úr olíunni, plastið skálina og leyfið að hefast í um 1 klukkustund.

Skref2

  • Hitið ofninn í 200°C.
  • Skiptið deiginu næst í tvo hluta. Fletjið annan út og mótið nokkurs konar jólatré/þríhyrning úr honum sem þekur bökunarplötu (á bökunarpappír) eins og unnt er (hægt að teikna á smjörpappír. Líka gott að renna hnífnum laust eftir deiginu til að gera smá línu áður en skorið er af deiginu til að það sé um það bil eins báðum megin.
  • Penslið með hvítlaukssmjöri og stráið cheddar ostinum yfir smjörið.
  • Hvítlaukssmjör: Setjið innihaldsefni í pott og hrærið saman á vægum hita þar til smjörið er bráðið.

Skref3

  • Fletjið hinn helming deigsins út og leggið ofan á, skerið síðan eftir línunum.
  • Ímyndið ykkur síðan að það sé stofn upp með miðju jólatrénu og skerið jafnar lengjur til beggja hliða út frá „stofninum“, þær mega vera um 3 cm á breidd.
  • Snúið síðan upp á hverja lengju svo úr verði snúin brauðstöng, það er allt í lagi þó smá ostur hrynji út.

Skref4

  • Penslið aftur með hvítlaukssmjöri og bakið í 15-20 mínútur eða þar til tréð er orðið vel gyllt.
  • Takið úr ofninum og penslið einu sinni enn með vel af hvítlaukssmjöri.
  • Njótið með pizzasósu.
Skref 4

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir