Menu
Ostadýfa með chili

Ostadýfa með chili

Einfaldar ídýfur slá alltaf í gegn. Þessi hér rífur aðeins í og er virkilega góð. Fullkomin fyrir sumarpartý, saumaklúbbinn eða kósýkvöldið.

Innihald

1 skammtar
ostakubbur frá Gott í matinn
rjómaostur frá Gott í matinn
hunang (+ meira ofan á)
hvítlauksrif
jalapeño úr krukku
chilli crisp í olíu
ristaðar furuhnetur

Aðferð

  • Setjið ostakubb, rjómaost og hunang í blandara.
  • Rífið hvítlauksrifin, saxið jalapeño og setjið saman við, blandið öllu vel þar til hægt er að smyrja úr blöndunni á disk.
  • Toppið með chilli crisp, smá meira hunangi og ristuðum furuhnetum.
  • Njótið með góðu kexi eða brauði.
Aðferð

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir