Menu
Ostabakki í fánalitunum

Ostabakki í fánalitunum

Ostabakki í fánalitunum setur skemmtilegan svip á veisluborðið á 17. júní, í afmælis- og útskriftarveislum og smakkast líka einstaklega vel.

Innihald

1 skammtar
• Dala Höfðingi
• Dala Gullostur
• Dala hringur
• Mozzarella kúlur
• kex
• jarðarber
• rauð paprika
• litlir tómatar
• parma skinka
• vínber
• bláber
• plómur
• döðlur
• bláberjasulta í glasi
• rúsínur
• sprettur

Aðferð

  • Byrjið á því að finna bakka eða bretti sem er ferhyrnt. Einnig hægt að nota stóran kringlóttan bakka og nota þá ferhyrningslaga bökunarpappír undir.
  • Ég hvet ykkur til að nota ímyndunaraflið og nota það grænmeti og ávexti sem ykkur dettur í hug.
  • Svo er bara að hefjast handa við að skera niður ávextina og ostana.
  • Ég byrjaði á að gera rauðu línuna með jarðarberjum, tómötum, papriku og parma skinku. Skar svo niður ostana og raðaði þeim sitt hvoru megin við rauða krossinn ásamt kexinu.
  • Að lokum var svo að fylla inn í bláu kassana.

Höfundur: Helga Magga