Menu
Osta taco með hvítlaukssmjöri

Osta taco með hvítlaukssmjöri

Það er alltaf gaman að gera nýjar útfærslur af taco og þessi hér er virkilega skemmtileg. Að pensla tortillurnar með hvítlaukssmjöri og toppa með rifnum osti gerir þetta extra djúsí og gott!

Innihald

4 skammtar
tortillakökur, meðalstórar
nautahakk
laukur
nýrnabaunir
maísbaunir
tómatpúrra
taco krydd
salt, pipar og hvítlauksduft
vatn
fljótandi nautakraftur
rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
ólíuolía til steikingar

Hvítlaukssmjör

smjör
hvítlauksgeirar
kóríander

Annað meðlæti

guacamole, salsasósa, nachosflögur

Skref1

  • Byrjið á því að útbúa hvítlaukssmjörið með því að bræða smjör, rífa niður hvítlauk og saxa kóríander. Penslið botninn á ofnskúffu með smjörinu (til að raða tortillunum beint á).
  • Hitið ofninn í 200°C.

Skref2

  • Saxið niður laukinn og steikið ásamt hakkinu upp úr ólífuolíu. Kryddið með taco kryddi, salti, pipar og hvítlauksdufti.
  • Þegar hakkið er steikt má bæta tómatpúrru, vatni og krafti á pönnuna ásamt báðum tegundum af baunum og blanda vel saman.

Skref3

  • Skerið tortilla kökurnar í tvennt, setjið um 2 msk. af hakkblöndu á miðjuna á hverri og vel af rifnum osti. Brjótið hliðarnar þétt yfir miðjuna svo úr verði þríhyrnt taco og leggið í penslaða ofnskúffuna. Penslið síðan aftur yfir tortilla kökurnar með hvítlaukssmjöri og toppið með rifnum osti.
  • Bakið í um 15 mínútur eða þar til kantarnir fara aðeins að gyllast.
  • Njótið með fersku guacamole, salsasósu og nachos flögum.
Skref 3

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir