Menu
Ómótstæðileg ostapizza

Ómótstæðileg ostapizza

Ostapizzur slá alltaf í gegn og eru góð tilbreyting frá klassískri pizzu. Hér er á ferðinni pizza með rjómaosti, 4 osta blöndu, mozzarellaperlum og karamellíseruðum lauk, nammi nammi, namm, mögulega ein sú besta pizza sem ég hef prófað!

Uppskrift dugar fyrir 4 litlar (12 tommu) pizzur

Innihald

4 skammtar

Pizzadeig

hveiti
volgt vatn
þurrger (11,8 g)
ólífuolía

Karamellíseraður laukur

stórir laukar
smjör
salt
sykur

Annað hráefni

rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
óreganó krydd
4 osta blanda frá Gott í matinn
Mozzarellaperlur
klettasalat (75 g)
furuhnetur
hráskinkusneiðar
smá sítrónusafi
gróft salt
góð ólífuolía og balsamikgljái

Pizzadeig

  • Setjið þurrefnin í hrærivélarskál og festið krókinn á (þetta deig má einnig hnoða saman í höndunum en þá þarf að gera stóra holu í þurrefnahrúguna og blanda vatni og olíu saman við í nokkrum skömmtum).
  • Blandið þurrefnunum saman og hellið vatni og ólífuolíu saman við og hnoðið í nokkrar mínútur.
  • Penslið stóra skál með matarolíu, veltið deigkúlunni upp úr olíunni, plastið skálina og leyfið að hefast í um eina klukkustund.

Karamellíseraður laukur

  • Steikið laukinn við meðalháan hita upp úr smjörinu þar til hann mýkist.
  • Saltið og sykrið og steikið áfram við lágan hita þar til laukurinn fer aðeins að brúnast og karamellíserast, slökkvið þá á hellunni og látið laukinn standa þar til hann fer á pizzuna.

Samsetning

  • Skiptið deiginu niður í 4 hluta, smyrjið rjómaosti yfir hvern botn og stráið vel af oregano yfir.
  • Skiptið næst lauknum á milli botnanna og dreifið vel úr.
  • Stráið þá 4 osta blöndu yfir allt og um 20 mozzarellaperlum á hverja pizzu.
  • Bakið við 220°C í um 13-15 mínútur og takið úr ofninum þegar kantarnir eru orðnir vel gylltir.
  • Toppið með klettasalati, furuhnetum, hráskinku, sítrónusafa, ólífuolíu, balsamikgljáa og grófu salti.
Samsetning

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir