Menu
Ommeletta með bræddum Goðdala Gretti

Ommeletta með bræddum Goðdala Gretti

Ég geri oft vel við mig um helgar og útbý ommelettu og fleira góðgæti. Að þessu sinni bræddi ég íslenska sælkeraostinn Gretti úr Goðdala línunni yfir ommelettuna mína og það kom ljómandi vel út.

Osturinn er nýr íslenskur ostur úr Skagafirði og ég á eflaust eftir að nota hann mikið í hina ýmsu rétti í framtíðinni enda er ég mikið fyrir bæði osta og rjóma í matargerð. Grettir er sætur og stökkur ostur sem kemur skemmtilega á óvart. Hann hefur milt og ljúft bragð sem og flauelsmjúka áferð.

Innihald

2 skammtar
egg
sveppir (eftir smekk)
skinka (eftir smekk)
íslenskt smjör
Goðdala Grettir
Vorlaukur (eftir smekk)

Skref1

  • Pískið eggin saman með gaffli og kryddið með grófu salti og svörtum pipar.
  • Skerið skinku og sveppi niður í litla bita og fleira grænmeti ef þið viljið.
  • Einnig er gott að setja rauða eða gula papriku, aspas, mozzarellaost, ferskt kóríander og kirsuberjatómata.

Skref2

  • Bræðið íslenskt smjör á pönnu og hellið eggjahrærunni út á.
  • Setjið skinku og sveppi yfir eggin eftir 1 mínútu.
  • Steikið á báðum hliðum.

Skref3

  • Skerið Gretti niður í litla bita og dreifið honum yfir ommelettuna undir lokin.
  • Þegar osturinn hefur bráðnað er gott að setja vorlauk yfir.

Höfundur: Tinna Alavis