Menu
Ofnbakað grænmeti og súrdeigsbrauð með kryddjurtum

Ofnbakað grænmeti og súrdeigsbrauð með kryddjurtum

Innihald

4 skammtar

kryddjurtaostakurl

ólívuolía
handfylli af ítalskri steinselju
handfylli af ferskri basilíku
möndlumjöl
sjávarsalt
rifinn mozzarellaostur frá Gott í matinn

ofnbakað grænmeti

eggaldin, skorið í 1 cm þykkar sneiðar
kúrbítur, skorinn í 1 cm þykkar sneiðar
rauðar paprikur, skornar í sex hluta
súrdeigsbrauð, tætt niður í góða munnbita
ólívuolía
sjávarsalt
tómatapassata
mozzarellaostakúla, tætt niður
rifinn parmesanostur

Aðferð

  • Stillið ofninn á 200°.
  • Setjið 3 msk. af ólívuolíu, steinselju, basilíku, möndlumjöl, ost og pínu salt í matvinnsluvél eða blandara og maukið.
  • Dreifið grænmetinu í ofnskúffu eða á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
  • Dreypið 2 msk. af ólívuolíu yfir, smá salti og kryddjurtaostakurlinu.
  • Bakið í 30 mínútur.
  • Takið úr ofninum og sáldrið mozzarella- og parmesanosti yfir.
  • Berið strax fram.

Höfundur: Erna Sverrisdóttir