Skref1
- Saxið niður lauk, skerið gulrætur í sneiðar og papriku í strimla.
- Steikið laukinn á meðalhita upp úr olíu og karrý þar til hann mýkist. Bætið gulrótum og papriku saman við, ögn meiri olíu og salti og pipar og færið yfir á disk.
Skref2
- Léttsteikið gúllasið í olíu á sömu pönnu, nóg er að rétt brúna það á hliðunum því það mun fulleldast þegar pottrétturinn mallar.
- Bætið tómatpúrru á kjötið á pönnunni, rjómaosti og matreiðslurjóma og hrærið vel.
- Hellið grænmetinu saman við og kryddið réttinn til með salti, pipar, paprikudufti og krafti.
Skref3
- Gott er að leyfa réttinum að malla í 30-60 mínútur og bera fram með hrísgrjónum.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir