Menu
Mozzarella popp

Mozzarella popp

Ótrúlega sniðugt og öðruvísi ostasnakk sem kemur skemmtilega á óvart! 

Innihald

2 skammtar
egg
panko brauðrasp
ítölsk kryddblanda
mozzarella perlur
salt og pipar
olía

Aðferð:

  • Hrærið saman egg og smá salt og pipar.
  • Setjið brauðrasp í skál ásamt ögn af salti og pipar, hrærið saman.
  • Takið Mozzarella perlu og dífið í eggin og látið leka aðeins af þeim.
  • Veltið ostinum upp úr raspinum og leggið til hliðar. Gerið þetta við allar perlurnar.
  • Setjið mataroíu í pott og hitið. Djúpsteikið ostinn í 30-60 sekúndur eða til perlurnar taka á sig gylltan lit.
  • Berið fram með góðri pastasósu.