Menu
Mexíkóskur pottréttur með hakki

Mexíkóskur pottréttur með hakki

Fljótlegur og góður hakkréttur sem eldaður er í einum potti og er kominn á borðið á innan við 30 mínútum. Gott að bera fram með sýrðum rjóma og góðu hvítlauksbrauði. Einnig er hægt að krydda með taco kryddblöndu ef þið eigið ekki öll kryddin hér að neðan. Fyrir ykkur sem viljið hafa réttinn í sterkari kantinum er hægt að bæta ½ tsk. af cayenne pipar. Þessi réttur dugar fyrir 4-6 manns.

Innihald

4 skammtar
nautahakk
laukur
hvítlauksgeirar
ólífuolía
cayenne pipar
óreganó
cumin
hvítlaukskrydd
paprikukrydd
sjávarsalt
tómatpúrra
hrísgrjón
vatn
kjötkraftsteningur
svartar baunir
rauð paprika
vorlaukur
lúka af ferskum kóríander
rifinn cheddar ostur frá Gott í matinn

Meðlæti

sýrður rjómi og hvítlauksbrauð

Skref1

  • Hitið olíu í potti eða djúpri pönnu og setjið laukana og hakkið í pottinn.
  • Steikið hakkið þar til það er alveg að verða fulleldað.
  • Bætið kryddi saman við ásamt tómat púrru, hrísgrjónum, baunum, vatni og kjötkrafti og hrærið allt vel saman.
  • Látið sjóða í 15 mínútur.

Skref2

  • Bætið 100 g af cheddarosti saman við ásamt 4 stk. af söxuðum vorlauk, söxuðum ferskum kóríander og papriku.
  • Hrærið öllu vel saman og látið sjóða í 2-4 mínútur.

Skref3

  • Setjið restina af ostinum yfir pottréttinn og setjið lokið ofan á þar til osturinn hefur náð að bráðna.
  • Saxið niður restina af vorlauknum og setjið ofan á.
  • Gott er að bera fram með sýrðum rjóma og t.d. hvítlauksbrauði.
Skref 3

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir