Menu
Mexíkóskur partýplatti

Mexíkóskur partýplatti

Mexíkóskur matur er bragðmikill og góður og þessi réttur er sko engin undantekning. Fullkominn helgarréttur til að njóta heima eða til að taka með sér þegar fjölskylda og vinir koma saman. Svo er það mexíkóska ostablandan sem setur punktinn svo sannarlega yfir i-ið.

Innihald

30 skammtar

Litlar kjúklingavefjur

litlar tortilla kökur
kjúklingabringur
laukur
hvítlauksrif
gular baunir
salsa sósa
sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn
brætt smjör
ólífuolía til steikingar
taco kryddblanda
salt og pipar

Guacamole

lítil avocado úr neti, eða 1-2 stærri
stór tómatur
lime safi
saxað kóríander
salt
pipar

Ostasósa

smjör
hveiti
nýmjólk
mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn

Meðlæti

nachos að eigin vali

Litlar kjúklingavefjur

  • Eldið bringurnar og tætið niður. Það má einnig tæta niður heilan grillaðan kjúkling að hluta til.
  • Hitið ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír í botninn á ofnskúffu, hafið tilbúna.
  • Saxið lauk og hvítlauk smátt niður og steikið upp úr ólífuolíu þar til mýkist, kryddið með salti og pipar eftir smekk.
  • Bætið þá gulum baunum, rifnum kjúklingi, tacokryddi, salsa sósu og sýrðum rjóma saman við og blandið með sleif.
  • Slökkvið á hellunni, hrærið mexíkósku ostablöndunni saman við og skiptið niður í tortillakökurnar.
  • Rúllið þétt upp og leggið samskeytin niður í ofnskúffuna. Penslið með bræddu smjöri.
  • Bakið í 10-12 mínútur eða þar til vefjurnar fara að dökkna aðeins í endunum.
  • Berið fram með fersku guacamole, ostasósu og nachosflögum.

Guacamole

  • Stappið avókadó og saxið tómatinn smátt.
  • Blandið öllu varlega saman við í skál með sleikju, smakkið til með salti og pipar.

Ostasósa

  • Bræðið smjörið og pískið hveitið saman við, leyfið að bubbla örlitla stund.
  • Hellið þá mjólkinni saman við og pískið vel áfram.
  • Þegar blandan hefur náð suðu má slökkva á hellunni og píska ostinn saman við, eina lúku í senn.
  • Njótið með stökkum nachos flögum.
Ostasósa

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir