Menu
Mexíkóborgari

Mexíkóborgari

Hér er á ferðinni alvöru borgari sem enginn hamborgaraaðdáandi ætti að láta framhjá sér fara!

Innihald

1 skammtar

Mexíkóborgari

• hamborgari
• sneið af Mexíkóosti frá MS
• sneið hvítlauksosti eða paprikuosti frá MS
• jalapenos úr krukku, sneiddir
• rauðlaukur, sneiddur
• salat að eigin vali
• svartar ólífur
• tómatur í sneiðum
• hamborgarabrauð
• sýrður rjómi frá Gott í matinn

Skref1

  • Grillið borgarann eftir smekk.
  • Leggið Mexíkó- og hvítlauks-ostsneiðar á borgarann þegar 1-2 mínútur eru eftir af steikingartímanum og látið ostinn bráðna örlítið.
  • Hitið brauðið á sama tíma á efri grind grillsins og smyrjið með sýrðum rjóma.

Skref2

  • Raðið borgaranum saman.
  • Berið fram með tortillaflögum og sýrðum rjóma.

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir