Menu
Mexíkó panna með hakki og cheddar

Mexíkó panna með hakki og cheddar

Fjölskylduvænn og ljúffengur kvöldverður eldaður og borinn fram í einni pönnu. Þessi hittir alltaf í mark á heimilinu og ég ber hann fram með nachos, sýrðum rjóma og fleira góðgæti.

Innihald

5 skammtar
smjör
rauðlaukur, smátt saxaður
hvítlauksrif, smátt söxuð
rauð paprika, smátt söxuð
nautahakk
tilbúið taco krydd
cummin
reykt paprika
• salt og pipar eftir smekk
maískorn
svartar baunir, skolaðar og sigtaðar
hakkaðir tómatar
salsasósa
hvít hrísgrjón
vatn
rifinn cheddar ostur frá Gott í matinn

Meðlæti

• ferskur kóríander
• avocado
• sýrður rjómi frá Gott í matinn
• tómatar, saxaðir
• límóna
• nachos flögur

Skref1

  • Hitið smjör á stórri pönnu við meðalhita.
  • Bætið lauknum út á og steikið í 3–4 mínútur þar til hann er mjúkur.
  • Bætið þá hvítlauk og papriku út á og steikið í 2–3 mínútur þar til grænmetið mjúkt.
  • Bætið þá hakkinu út á ásamt kryddinu og steikið áfram.

Skref2

  • Bætið á pönnuna maís, svörtum baunum, tómatadós, salsasósu, hrísgrjónum og vatni.
  • Blandið vel saman, hleypið suðunni upp, lækkið þá hitann og látið malla undir loki í 15-20 mínútur eða þar til hrísgrjónin eru soðin.
  • Bætið við vatni ef ykkur finnst þurfa.

Skref3

  • Smakkið réttinn til með kryddi, salti og pipar, stráið svo rifnum ostinum jafnt yfir réttinn.
  • Hitið ofn á 240 gráður eða setjið á grillstillingu, setjið inn í ofn og bakið þar til osturinn er gullinbrúnn.
  • Ef þið eigið ekki pönnu sem má fara inn í ofn má einfaldlega færa réttinn yfir í eldfast mót áður en rifna ostinum er dreift yfir.

Skref4

  • Takið pönnuna eða eldfasta mótið úr ofninum og látið standa í 10 mínútur.
  • Stráið kóríander yfir, toppið með avocado, tómötum og sýrðum rjóma og kreistið smá lime yfir ef vill.
  • Berið fram með nachos flögum.
Skref 4

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir