Menu
Marineraður mozzarella

Marineraður mozzarella

Að marinera mozzarellaost kemur skemmtilega á óvart. Þennan rétt má í raun nota á margt, á brauð, út á salat eða pizzuna. Ég notaði bæði Mozzarella kúlur og perlur en það er í fínu lagi að nota tvær dósir af annarri hvorri tegundinni.

Innihald

1 skammtar
mozzarella kúlur
mozzarella perlur
oregano
tímían
chili
salt
pipar
hvítlauksrif
sólþurrkaðir tómatar, smátt skornir
olía af sólþurrkuðum tómötum eða ólífuolía, 0,5-1 dl
fersk basilíka, niðurskorin

Aðferð

  • Setjið innihaldsefnin í krukku eða box sem hægt er að loka.
  • Hristið krukkuna til að blanda innihaldinu saman.
  • Gott að láta blönduna bíða í ísskáp í 1-2 klst. áður en kúlurnar eru notaðar.
Aðferð

Höfundur: Helga Magga