Menu
Margarita flatbrauð með mozzarella

Margarita flatbrauð með mozzarella

Einfalt, fljótlegt og gott!

Innihald

1 skammtar
• margarita flatbrauð eða naan brauð
• pizzasósa
stór mozzarella kúla, skorin í sneiðar
• marglitir tómatar
• fersk basilíka
• balsamik gljái
• gróft salt

Aðferð

  • Hitið ofninn í 220°C og leggið brauðið á bökunarpappír.
  • Dreifið pizzasósu yfir brauðið.
  • Dreifið niðurskornum mozzarella og tómötum skornum í tvennt (látið sárið vísa upp).
  • Setjið brauðið í ofninn í 7–10 mín. eða þar til osturinn bráðnar.
  • Stráið grófu salti og basilikulaufum yfir allt ásamt balsamik gljáa.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir