Menu
Marengsskálar með mascarpone

Marengsskálar með mascarpone

Einfaldur og skemmtilegur eftirréttur þar sem mascarpone með súkkulaðibragði er í aðalhlutverki.

Einföld uppskrift dugar í um 9 skálar.

Innihald

1 skammtar

Marengsskálar

eggjahvítur
sykur

Súkkulaðimús

mascarpone með súkkulaðibragði, 1 dós
rjómi frá Gott í matinn, þeyttur
flórsykur

Tillaga að toppi

• jarðarber, stökkar súkkulaðikúlur og rifið suðusúkkulaði

Marengsskálar

  • Setjið eggjahvítur og sykur í skál.
  • Stífþeytið og setjið sprautupoka.
  • Sprautið smá botn og svo kant á hvern botn, um 3 hringi.
  • Uppskriftin dugar í um 9 skálar.
  • Hitið ofn í 140° blástur og bakið skálarnar í 1 klst.
  • Leyfið skálunum að kólna í ofninum yfir nótt.

Súkkulaðimús og samsetning

  • Þeytið saman mascarpone með súkkulaðibragði og flórsykur.
  • Rjóminn er þeyttur í annarri skál og mascarponeblöndunni síðan bætt út í og þeytt vel saman.
  • Sprautið í marengsskálarnar og skreytið að vild.
  • Þessar skálar voru toppaðar með jarðarberjum, Omnom lakkrís krunch kúlum og rifnu suðusúkkulaði.

Höfundur: Kristín Hafsteinsdóttir