Skref1
- Hitið ofninn í 110°C og teiknið um 20 cm hring á bökunarpappír.
- Pískið eggjahvítur, kartöflumjöl og hvítvínsedik saman í hrærivélinni þar til blandan fer aðeins að freyða.
- Bætið sykrinum þá saman við í nokkrum skömmtum og þeytið þar til allur sykur er uppleystur.
- Bætið vanilludropunum saman við í lokin og hrærið áfram stutta stund.
Skref2
- Setjið blönduna í sprautupoka með stórum stjörnustút og sprautið 8 marengshreiður eftir hringnum sem þið teiknuðuð. Gott að sprauta botninn fyrst og síðan upp kantinn til að búa til rými fyrir súkkulaðirjómann í miðjunni.
- Ef það er afgangur af marengsblöndu þá má sprauta stök hreiður eða marengstoppa úr afganginum.
- Bakið í 2 klukkustundir og slökkvið á ofninum, leyfið marengskransinum að kólna niður með honum.
Skref3
- Næst er það súkkulaðirjóminn.
- Þeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til blandan verður ljós og þykk.
- Blandið þá bræddu súkkulaði saman við með sleikju.
- Súkkulaðiblandan má að lokum blandast saman við þeytta rjómann með sleikju.
Skref4
- Fyllið marengshreiðrin með súkkulaðirjómanum.
- Það er allt í lagi þó rjóminn fari vel upp fyrir holuna.
- Skreytið með litlum súkkulaði páskaeggjum eða öðru páskalegu.
Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir