Menu
Marengskrans með rjóma og lakkríssósu

Marengskrans með rjóma og lakkríssósu

Marengs, marengs, marengs! Það er ekki hægt að fá leið á marengs, það er bara þannig. Það er endalaust hægt að leika sér með slíkar kökur, hafa þær litlar, stórar, með berjum, með nammi og allt þar á milli. Eitt er þó víst að engin er marengsterta án rjóma! Hann spilar lykilhlutverk í slíkum kökum, alltaf! Hér er ég búin að útbúa nokkurs konar marengskrans úr púðursykurmarengs og á milli er hindberjarjómi og lakkríssósa. Þessi var í eftirrétt hér í matarboði um daginn og ég ætla alveg að viðurkenna að fólk fékk sér meira en eina sneið!

Innihald

1 skammtar

Marengs

eggjahvítur
púðursykur
kartöflumjöl
hvítvínsedik

Lakkríssósa

bingókúlur
rjómi frá Gott í matinn

Fylling

rjómi frá Gott í matinn
maukuð hindber
ber og blóm til skrauts

Marengs

  • Hitið ofninn í 120°C.
  • Teiknið tvo eins hringi á bökunarpappír með gati í miðjunni, setjið á sitthvora bökunarplötuna.
  • Þeytið eggjahvíturnar á meðalhraða þar til þær fara aðeins að freyða.
  • Aukið þá hraðann og bætið sykrinum saman við í litlum skömmtum.
  • Kartöflumjöl og hvítvínsedik má fara saman við í lokin og þeytið þar til marengsinn er stífþeyttur og topparnir halda sér.
  • Bakið í eina klukkustund og leyfið að kólna með ofninum.

Lakkríssósa

  • Bræðið saman í potti og leyfið sósunni að ná stofuhita áður en hún sett er á marengsinn.

Fylling og samsetning

  • Þeytið rjómann og blandið maukuðum hindberjum saman við með sleikju.
  • Dreifið úr lakkríssósu yfir neðri marengsinn með því að renna skeið fram og til baka. Ekki þekja alveg heldur nota rúmlega helming sósunnar í þetta.
  • Setjið hindberjarjómann á milli marengshringjanna.
  • Dreifið úr restinni af lakkríssósunni og skreytið marengskransinn með blómum og berjum.
Fylling og samsetning

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir