Menu
Litlar súkkulaði ostakökur með súkkulaðirjóma

Litlar súkkulaði ostakökur með súkkulaðirjóma

Litlar og ljúffengar súkkulaði ostakökur sem eru tilvaldar sem eftirréttur við hvaða tilefni sem er. Það er sérstaklega gaman að bera fram smáa fallega eftirrétti þar sem hver og einn fær sína eigin köku sem er fallega skreytt og enn skemmtilegra að bjóða upp á þessar litlar ostakökur. Það tekur smá tíma að búa þær til en eru hverrar mínútu virði og auðvelt að gera þær 2-3 dögum áður en þær eru bornar fram.

Innihald

14 skammtar

Botn

oreo kexkökur
smjör, brætt

Ostakökur

gamli rjómaosturinn frá Gott í matinn
sykur
kakó
sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
rjómi frá Gott í matinn
vanilludropar
egg

Súkkulaðikrem

dökkt súkkulaði
rjómi frá Gott í matinn
síróp

Súkkulaðirjómi

rjómi frá Gott í matinn
flórsykur
kakó

Botn

  • Hitið ofninn í 160°C og raðið bollakökuformum ofan í bollaköku bökunarform.
  • Setjið Oreo kex í matvinnsluvél og hakkið þar til það er orðið fín malað.
  • Bræðið smjör og blandið saman við kexið og hrærið vel saman.
  • Setjið 1 msk. af kexblöndu ofan í hvert form og þrýstið niður með glasi eða öðru sem gott er að þrýsta kexinu vel niður með.

Ostakökur

  • Hrærið rjómaost og sykur saman þar til blandan verður mjúk og slétt.
  • Bætið kakói saman við ásamt sýrðum rjóma, rjóma, eggjum og vanillu.
  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og það eru engir kekkir í deiginu. Gott er að skafa hliðarnar á skálinni svo allt blandist sem best saman.
  • Gott er að setja deigið í sprautupoka og sprauta því ofan í hvert form fyrir sig. Fyllið formin alveg upp í topp, kökurnar falla aðeins eftir baksturinn og því þarf að fylla formin alveg.
  • Bakið kökurnar í 20-25 mínútur eða þar til kökurnar virðast vera orðnar full bakaðar. Toppurinn á kökunum brotnar kannski aðeins en það jafnar sig.
  • Þegar bökunartíma lýkur þá slökkvið þið á ofninum og leyfið kökunum að jafna sig í 10 mínútur. Þegar þær eru liðnar er gott að opna ofninn aðeins og leyfa þeim að jafna sig í aðrar 10 mínútur.
  • Kælið kökurnar í 1-2 klukkustundir áður en þið takið þær úr bollakökuformunum og skreytið þær.

Súkkulaðikrem

  • Setjið rjóma í pott yfir meðalháan hita og hitið rjómann þar til hann er alveg að fara sjóða.
  • Slökkvið undir pottinum, setjið súkkulaðið saman við ásamt sírópinu og hrærið saman þar til súkkulaðikremið er orðin fínt og slétt.
  • Látið kremið standa í rúmlega 10 mínútur í pottinum svo það þykkni aðeins áður en það er sett á kökurnar.
  • Setjið 1 msk. af súkkulaðikremi ofan á hverja köku.

Súkkulaðirjómi

  • Þeytið rjómann þar til hann er alveg að fara að standa.
  • Sigtið flórsykur og kakó saman við rjómann og hrærið saman með sleif.
  • Setjið rjómann í sprautupoka og sprautið honum fallega ofan á hverja köku fyrir sig.
  • Geymið kökurnar í kæli þar til þær eru bornar fram.
  • Kökurnar geymast vel í 4-5 daga og því er tilvalið að gera þær fram í tímann.
Súkkulaðirjómi

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir