Menu
Litlar pavlovur með Toblerone og berjum

Litlar pavlovur með Toblerone og berjum

Þessar litlu pavlovur eru allt í senn einfaldar, fallegar og virkilega ljúffengar og henta frábærlega sem eftirréttur við hvaða tilefni sem er.

Innihald

10 skammtar

Botnar:

eggjahvítur
sykur
vanilludropar
mataredik
salt á hnífsoddi

Fylling:

rjómi frá Gott í matinn
karamellukurl
Toblerone eða annað súkkulaði
KEA skyr með vanillu

Toppur:

Ber
Flórsykur
Súkkulaðispænir
Mynta

Botnar

  • Ofninn er hitaður í 100 gráður .
  • Eggjahvíturnar eru þeyttar með salti og sykrinum er bætt við rólega á meðan þeytt er.
  • Þegar eggjahvíturnar eru orðnar alveg stífar er ediki og vanilludropum bætt út í og hrært rólega.
  • Á bökunarpappír eru litlar kúlur myndaðar og hola mynduð með skeið í miðjunni
  • Sett í ofninn í 1 og hálfa klst.
  • Best er að slökkva síðan á ofninum og leyfa pavlovunni að geymast yfir nóttu inni í ofni.

Fylling

  • Rjóminn er þeyttur og restinni er svo blandað varlega saman við.
  • Rjóminn fer ofan á pavlovuna og þær skreyttar með berjum og því sem ykkur finnst gott.

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir