Menu
Linguine í ostasósu

Linguine í ostasósu

Ég var aldrei búin að prófa pastaæðið með ostakubbinum svo ég mátti til með að spreyta mig á þessu. Þetta er ótrúlega einfalt og virkilega skemmtileg tilbreyting frá öðrum pastaréttum og verður klárlega útbúið aftur á okkar heimili.

Innihald

4 skammtar
linguine (eða venjulegt spagettí)
ferskt spínat
kirsuberjatómatar
ostakubbur frá Gott í matinn
hvítlauksgeirar
pastavatn
ólífuolía
ristaðar furuhnetur
salt, pipar, hvítlauksduft

Aðferð

  • Hitið ofninn í 200°C.
  • Setjið spínat og tómata í eldfast mót og rífið hvítlaukinn yfir.
  • Setjið næst ólífuolíuna yfir allt, kryddið vel og blandið saman.
  • Leggið ostakubbinn í fatið og bakið í 25 mínútur í ofninum.
  • Sjóðið linguine þegar um 10 mínútur eru eftir af eldunartímanum í ofninum.
  • Stappið ost, tómata og spínat saman, hellið pastavatninu saman við og blandið öllu vel.
  • Næst fer soðið linguine saman við og blandið öllu vel saman.
  • Toppið með ristuðum furuhnetum og njótið!
Aðferð

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir