Bolognese sósa
- Hitið ofn í 120 gráður. Byrjið á því að setja flankasteikina í ofnpott, saltið hana örlítið. Dreypið ólífuolíu yfir og vatni, svo þeki botninn á pottinum.
- Hafið í ofninum í þrjá til fjóra tíma eða þar til auðvelt er að rífa kjötið niður og það er lungamjúkt. Rífið kjötið niður að eldunartíma loknum.
- Notið stóran pott undir sósuna.
- Mýkið grænmeti upp í góðri ólífuolíu. Setjið þá hakk saman við ásamt beikoni og hrærið vel. Hellið tómötum yfir ásamt tómatpaste. Saltið aðeins og piprið.
- Blandið öllu vel saman. Hafið pottinn á lágum hita og látið suðuna koma upp undir sósunni. Lækkið þá hitann og hafið hann mjög lágan en þannig að sósan malli.
- Því lengri tíma sem sósan fær, því betri verður hún.
- Nú skal blanda rifna nautakjötinu saman við kjötsósuna ásamt basilíkunni og leyfa öllu að malla saman í um hálftíma.
Bechamel sósa
- Bræðið smjör í potti.
- Hrærið hveiti saman og úr verður smjörbolla.
- Hellið smá mjólk út í og hrærið mjög vel þar til smjörbollan tekur að leysast upp.
- Hellið meiri mjólk og hrærið, haldið áfram í þessu ferli þar til smjörbollan er orðin að kekkjalausum jafningi.
- Athugið að magn á mjólk sem þarf í sósuna getur verið mjög mismunandi.
- Hrærið parmesanost saman við og látið hann bráðna vel.
- Kryddið með múskati og smakkið til með salti og pipar.
Lasanja samsetning
- Hitið ofn í 180 gráður.
- Finnið til gott ofnfast mót fyrir lasanja.
- Setjið þunnt lag af kjötsósu í botninn á mótinu og lasanjaplötur yfir.
- Þá fer vænt lag af kjötsósu yfir plöturnar, lag af bechamel-sósunni og aftur lasanjaplötur.
- Endurtakið ferlið eins oft og mótið leyfir. Það er mjög flott af ná nokkrum hæðum. Ljúkið lögunum á plötum og sósu yfir þær.
- Rífið niður mozzarellakúluna og stráið yfir sósuna.
- Stingið í ofn í 40 mínútur.
- Takið þá úr ofninum og látið standa í dágóða stund áður en borið fram svo betra sé að skera réttinn og hann sé fallegri á diski.
- Of heitt lasanja bragðast heldur ekki eins vel og það sem hefur fengið að standa sinn stöðutíma.
Höfundur: Halla Bára Gestsdóttir