Menu
Kryddbrauð

Kryddbrauð

Æðislega gott brauð með miklu smjöri og osti. Ilmurinn sem kemur á heimilið þegar bakað er kryddbrauð er alveg dásamlegur.

Ég geri uppskrift fyrir 2 kryddbrauð þar sem 1 klárast strax. Auðvitað getið þið minnkað uppskriftina.

Innihald

2 skammtar
hafrar
hveiti
sykur
engifer
matarsódi
kanill
negull
mjólk
egg

Skref1

  • Öllum þurrefnunum er blandað saman í skál.

Skref2

  • Í aðra skál er eggjum og mjólk pískað saman með gaffli og hellt ut í þurrefnablönduna.

Skref3

  • Látið degið standa i 15 mínútur svo að hafrarnir mýkist upp.

Skref4

  • Bakið í ofni í 10 mínútur á 200 gráðum, lækkið svo hitann í 170 gráður og bakið í 30 mínútur í viðbót.
Skref 4

Höfundur: Gígja S. Guðjónsdóttir