Menu
Krakkavænn fiskréttur

Krakkavænn fiskréttur

Frábær gratíneraður karrí fiskur sem slær í gegn hjá öllum aldurshópum.

Gott er að bera fiskinn fram með soðnum hrísgrjónum.

Innihald

4 skammtar
þorskhnakkar
smjör
laukur
karrí
fiski- eða humarkraftur
rjómi frá Gott í matinn
súrmjólk
maizena mjöl
salt, pipar, cheyenne pipar eftir smekk
rifinn gratínostur frá Gott í matinn

Skref1

  • Hitið ofninn í 180°C.
  • Skolið og þerrið fiskinn, skerið hnakkana í 2-3 cm bita og raðið í botninn á eldföstu móti, kryddið með salti og pipar.

Skref2

  • Saxið laukinn mjög smátt (þannig finna börn ekki fyrir því það sé laukur en hann gefur svo gott bragð í réttinn).

Skref3

  • Steikið laukinn upp úr smjörinu við meðalhita þar til hann mýkist og kryddið með karrý, salt og pipar.

Skref4

  • Bætið þá rjóma, krafti og súrmjólk á pönnuna, náið upp suðunni og þykkið með maizenamjöli.
  • Kryddið til með cheyenne pipar, salti, pipar og krafti eftir smekk.

Skref5

  • Hellið sósunni yfir fiskinn í fatinu.
  • Setjið vel af rifnum gratínosti yfir og bakið í um 30 mínútur.
Skref 5

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir