Menu
Kotasæluís

Kotasæluís

Þessi kotasæluís er búinn að vera að gera allt vitlaust á tiktok og er algjörlega kominn í uppáhald hjá börnunum mínum. Ég mæli með því að gera tvöfalda uppskrift því það er leiðinlegt að bíða eftir næsta skammti úr frystinum.

Innihald

1 skammtar
kotasæla
frosin jarðarber
hunang
safi úr hálfri límónu

Aðferð

  • Látið jarðarberin þiðna örlítið á borði eða notið fersk jarðarber.
  • Blandið jarðarberjunum saman við kotasæluna, hunang og límónusafa í blandara,
  • Þegar ísinn er frystur er gott að hræra aðeins upp í honum inn á milli til að ná góðri áferð.
  • Ég hef verið að gera ísinn án próteindufts þar sem börnin mín borða mikið af honum. En að sjálfsögðu er hægt að bæta próteindufti út í ísinn, t.d. 30 g af próteindufti með vanillu- eða jarðaberjabragði.
Aðferð

Næringargildi

  • Fyrir þau sem að telja macros fylgir skráning næringargilda með.
  • Næring í 100 g: Kolvetni: 7,8 g - Prótein: 7,7 g - Fita: 2,7 g - Trefjar: 0,7 g.
  • Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Kotasæluís.
Næringargildi

Höfundur: Helga Magga