Menu
Kókoskaka með meringue kremi og súkkulaðieggjum

Kókoskaka með meringue kremi og súkkulaðieggjum

Dásamleg kaka sem smellpassar á hvaða veisluborð sem er og sé hún skreytt með súkkulaðieggjum hentar hún fullkomlega á veisluborðið um páskana eða í fermingarveisluna. Kakan dugar fyrir 8-10 manns. 

Innihald

1 skammtar

Kókoskaka

sykur
egg
hveiti
lyftiduft
salt
kókosmjólk í dós
kókosmjöl
vanilludropar

Meringue krem

eggjahvítur
smjör við stofuhita

Meringue krem

sykur
möndludropar

Toppur

kókosmjöl
súkkulaðiegg

Kókoskaka

  • Hitið ofninn í 180 gráður og smyrjið tvö ca 18 cm bökunarform.
  • Hrærið sykur og egg saman þar til blandan verður létt og ljós.
  • Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman og hrærið, bætið saman við deigið ásamt mjólkinni og vanilludropum.
  • Bætið því næst kókos saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman, passið þó að hræra ekki of mikið því þá verður kakan seig.
  • Hellið deiginu til jafns í formin og bakið í 20-25 mínútur eða þar til tannstöngull kemur hreinn upp úr miðju kökunnar.

Meringue krem

  • Setjið sykur og eggjahvítur í skál, t.d. glerskál eða stálskál og hrærið saman.
  • Setjið skálina yfir pott sem er hálf fylltur af vatni sem sýður.
  • Hrærið stanslaust þar til sykurinn hefur náð að bráðna og blandast eggjahvítunum, blandan verður hálfpartinn eins og það sé búið að bræða sykurpúða.
  • Setjið blönduna í skál og þeytið þar til eggjahvíturnar hafa náð að kólna og eru orðnar stífar og standa.
  • Bætið þá smjörinu smátt og smátt saman við. Hrærið vel á milli svo smjörið blandist vel saman.
  • Endurtakið þetta þar til allt smjörið hefur blandast saman og kremið er orðið mjúkt og slétt.
  • Bætið möndludropum saman við. Gott er að smakka kremið til og bæta við dropum ef þess þarf.

Samsetning

  • Setjið krem á milli botnanna á kökunni og utan um hana alla.
  • Þrýstið kókosmjöli utan um alla kökuna og setjið einnig ofan á toppinn.
  • Skreytið með litlum súkkulaðieggjum.
  • Setjið kökuna í kæli ef það á að geyma hana til næsta dags, en takið út um 30 mínútum áður en þið gæðið ykkur á henni.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir