Menu
Klassískar sörur

Klassískar sörur

Klassískar sörur með dásamlega góðu kaffikremi sem eru ómissandi á mörgum heimilum fyrir jólin. Að baka sörur er ekki eins flókið og það hljómar, um að gera að bretta upp ermar og henda í eina uppskrift!

Innihald

60 skammtar

Marengs:

eggjahvítur
flórsykur
möndlur, án hýði
hálf teskeið möndludropar

Krem:

eggjarauður
sykur
vatn
smjör við stofuhita
kakó
skyndikaffi

Súkkulaðihjúpur:

dökkt súkkulaði
ólífuolía

Krem

  • Best er að byrja á því að gera kremið og kæla það svo á meðan þið gerið marengsinn. 
  • Gott er að kveikja á ofninum í 180 gráðu hita og setja smjörpappír á tvær bökunarplötur.
  • Setjið vatn og sykur saman í pott yfir meðal háan hita og látið suðuna koma upp. Hrærið af og til, þetta tekur ca, 5-7 mínútur og þykknar og verður að sírópi þegar það kólnar.
  • Takið pottinn af og kælið sírópið.
  • Þeytið eggjarauður þar til þær verða ljósar.
  • Bætið sírópinu rólega saman við og hrærið á meðan.
  • Bætið smjörinu saman við, en mikilvægt er að smjörið sé við stofuhita.
  • Hrærið þar til kremið er orðið slétt og fínt.
  • Blandið kakói saman við ásamt skyndikaffi, gott er að mylja kaffið aðeins svo það verði fínna.
  • Hrærið þar til allt hefur blandast vel saman og kremið er slétt og fínt.
  • Setjið kremið inn í ísskáp á meðan þið bakið marengsinn.

Marengs

  • Hrærið eggjahvíturnar þar til þær freyða.
  • Blandið flórsykri hægt og rólega saman við og hrærið þar til marengsinn verður stífur og stendur.
  • Setjið möndludropa saman við og hrærið vel.
  • Hakkið möndlurnar þar til þær verða fínt malaðar, blandið þeim saman við og hrærið rólega með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Hægt er að nota tvær skeiðar og setja um 1 msk. í hverja köku á smjörpappír. Mér finnst best að setja hringlaga stút í sprautupoka eða klippa stórt gat á sprautupoka og setja marengsinn ofan í pokann og sprauta honum á plöturnar. Þannig verða þær fallegar í laginu og allar jafn stórar.
  • Bakið kökurnar við 180 gráðu hita í 10-12 mínútur.
  • Kælið kökurnar alveg áður en þið setjið kremið á þær.
  • Setjið kremið á kökurnar. Ég set kremið á þá hlið sem snýr upp þegar ég tek þær út úr ofninum því þá standa þær svo vel. Gott er að setja 1-2 tsk af kremi, eða meira fyrir þá sem vilja.
  • Mér finnst best að setja kremið einnig í sprautupoka og klippa stórt gat, sprauta svo kremi á hverja köku fyrir sig og slétta svo úr því með skeið eða spaða. Kælið kökurnar í stutta stund og undirbúið súkkulaðið.

Súkkulaðihjúpur

  • Setjið súkkulaðið í skál ásamt olíunni og setjið inn í örbylgju í um 30 sek. Gott er að hræra á milli og hita þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg.
  • Dýfið hverri köku ofan í súkkulaðið.
  • Geymið kökurnar í kæli eða frysti.
Súkkulaðihjúpur

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir