Menu
Klassísk skinkuhorn

Klassísk skinkuhorn

Klassísk skinkuhorn sem smellpassa í nestisboxið og er upplagt að eiga í frysti.

Innihald

32 skammtar

Skinkuhorn

mjólk
þurrger (1 pk)
sykur
olía
salt
brauðhveiti (Blátt Kornax)

Fylling

skinka
smurostur, skinkumyrja

rifinn Mozzarella ostur frá Gott í matinn

Deig

  • Hitið mjólkina þangað til hún er ylvolg, í örbylgjuofni eða potti.
  • Setjið í hrærivélarskál og bætið þurrgerinu saman við, hrærið létt saman. Leyfið því að standa örlítið meðan þið takið hin hráefnin saman. Bætið þá restinni af hráefnunum saman við og hrærið með krók á lágri stillingu í 3-4 mín.
  • Takið deigið sem hefur fest við krókinn af og takið deigið í hendurnar á ykkur og hnoðið í kúlu.
  • Setið deigið aftur í skálina og rakt viskastykki yfir.
  • Leyfið deiginu að hvíla í minnst 1 klst.

Fylling

  • Skerið skinkuna niður í ferninga og blandið saman við smurostinn.

Aðferð

  • Takið deigið og setjið á hveitistráð borð og skiptið því upp í tvennt.
  • Takið annan helminginn og fletjið út, reynið að fletja það út í hring eftir bestu getu.
  • Gott er að fletja það vel út eða um 5 mm á þykkt u.þ.b. Skerið síðan deigið í 16 þríhyrninga.
  • Setjið u.þ.b. eina teskeið af fyllingu á hvern þríhyrninn og setjið á breiðari endann. Gott að setja smá rifinn ost til að gera extra djúsí.
  • Til að rúlla þeim upp, tosið aðeins í hornin sitthvoru megin við fyllinguna, lokið fyllinguna inni með deiginu og rúllið upp. Tosið í mjóa endann til að fá brotið í þeim til að enda undir horninu.
  • Leggið hornin á bökunarpappír og látið mjóa endann snúa niður og hafið gott bil á milli þeirra.
  • Passið að fyllingin sé lokuð inni í deiginu svo hún renni ekki út um allt þegar þau fara inn í ofn.
  • Leyfið þeim að hefast í 20-30 mín.
  • Endurtakið með hinn helminginn af deiginu.
  • Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, blástur.
  • Setjið smávegis mjólk í glas og penslið yfir hornin til að fá fallega áferð á þau.
  • Setjið rifinn ost ofan á hvert horn.
  • Bakið hornin í 10 mín eða þangað til þau eru orðin gullinbrún.
Aðferð

Frysting

  • Mér finnst best að baka hornin, leyfa þeim að kólna lítillega og setja þau beint í frystinn ef ekki á að borða þau strax. Það er eitthvað svo gott að eiga skinkuhorn í frystinum og taka út og setja í nokkrar mínútur í ofninn áður en þau eru borin fram. Eins og að bera fram nýbakað við hvaða tækifæri sem er, algjör snilld!

Höfundur: Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir