Menu
Kjúklingur með sinnepssósu og kornflakesraspi

Kjúklingur með sinnepssósu og kornflakesraspi

Sniðugur kornfleks kjúklingur úr smiðju Árna Þórs matreiðslumeistara.

Þessi uppskrift dugar fyrir 6.

Innihald

1 skammtar

Kjúklingur með sinnepssósu og kornflakesraspi

salt og svartur pipar
kjúklingabringur
sýrður rjómi
sætt sinnep
dijon sinnep
kornflakes

Sætkartöflugratín

salt
sætar kartöflur
meðalstór laukur
beikon
rjómi
piparostur rifinn
gratínostur

Skref1

  • Takið skinnið af bringunum og setjið í smurt form kryddið með salti og nýmuldum sv.pipar.
  • Blandið saman sýrðum rjóma og sinnepi og smyrjið yfir kjúklingin.
  • Stráið því næst muldu kornflakes yfir svo það hylji vel kjúklinginn.
  • Bakið við 185° í c.a. 30 mín eða þar til bringurnar eru gegnum steiktar.
  • Berið fram með sætkartöflugratíni og fersku brokkolí.

Skref2

  • Skrælið og skerið sætarkartöflur í teninga og saxið laukinn setjið í eldfast mót.
  • Steikið beikon á pönnu og hellið rjóma yfir bætið í rifnum piparosti blandið vel saman hellið rjómablöndunni yfir kartöflurnar og stráið loks gratínosti yfir.
  • Bakið við 175° í 30 – 40 mín

Höfundur: Árni Þór Arnórsson