Menu
Kjúklingur í karrí

Kjúklingur í karrí

Bragðmikill og góður kjúklingaréttur fyrir alla fjölskylduna.

Innihald

4 skammtar
kjúklingalæri á beini (6-8 stk.)
smjör
salt og pipar
hvítlauksgeirar
karrí
cumin
cayenne pipar
kjúklingateningur
sojasósa
matreiðslurjómi frá Gott í matinn
kókosmjólk
gulrætur
Blómkál
Brokkólí
Kóríander

Skref1

  • Bræðið smjör á pönnu, kryddið kjúklingalærin með salti og pipar.
  • Steikið á hvorri hlið fyrir sig í rúmar 3 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er orðinn brúnaður.
  • Setjið kjúklingalærin í eldfast mót og gerið sósuna.

Skref2

  • Saxið niður hvítlauk og steikið léttilega.
  • Blandið restinni af kryddinu saman við ásamt sojasósu og kjúklingakrafti.

Skref3

  • Blandið matreiðslurjóma og kókosmjólk saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Gott er að smakka sósuna og krydda meira ef þess er þörf.
  • Hellið sósunni yfir kjúklingalærin.

Skref4

  • Saxið niður gulrætur, blómkál og brokkolí og setjið saman við sósuna.
  • Hér er þó hægt að setja það grænmeti sem hver og einn vill saman við.

Skref5

  • Saxið niður kóríander og stráið yfir.
  • Eldið í rúmlega 25 mínútur við 200°C, eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
  • Berið fram með hrísgrjónum og t.d. naanbrauði.
Skref 5

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir