Skref1
- Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið á pönnu með íslensku smjöri. Kryddið með salti og pipar ásamt chilikryddi eftir smekk.
- Skerið laukinn, paprikuna og hvítlaukinn niður í bita og steikið í potti með olíu og karrí þar til laukurinn er orðinn gylltur og mjúkur.
- Bætið við tómötum úr dós.
- Látið vatn í tómu dósirnar til að skola þær og hellið vatninu í pottinn og bætið við kjúklingateningi og tabasco sósunni. Kryddið eftir smekk með pipar og óreganó.
- Látið malla í 10 mínútur.
- Maukið niður súpuna, má sleppa.
- Bætið við rjómaostinum og kjúklingnum.
- Berið fram í skálar. Hver og einn bætir við rifnum osti og sýrðum rjóma eftir smekk.
Höfundur: Hafdís Priscilla Magnúsdóttir