Menu
Kjúklingasalat með stökkum hrísgrjónum

Kjúklingasalat með stökkum hrísgrjónum

Einstaklega sumarlegt og ferskt salat með stökkum hrísgrjónum. Tilvalinn réttur þegar þú vilt bjóða fólki í mat eða einfaldlega dekra við fjölskylduna þína. 

Innihald

5 skammtar

Stökk hrísgrjón

hrísgrjón (eða tveir pokar)
ólífuolía
paprikukrydd, óreganó og hvítlauksduft

Kjúklingur

kjúklingabringur (3-4 stk.)
ólífuolía
malað túrmerik
cumin
kanill
hvítlauksduft
svartur pipar

Salat

gúrka, skorin í bita
kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
rauðlaukur, sneiddur fínt (má vera meira)
litlar súrar gúrkur, skornar í litla bita
fersk mynta, söxuð smátt
salat

Jógúrtsósa

grísk jógúrt frá Gott í matinn
tahini
ólífuolía
sítróna, safinn
hvítlauksrif
flögusalt
hunang eða hlynsíróp fyrir sætleika

Skref1

  • Byrjaðu á að sjóða hrísgrjónin og hita ofninn í 200°C.
  • Settu svo soðin og örlítið kæld hrísgrjón á bökunarplötu og blandaðu saman við þau ólífuolíu og kryddi, 1 tsk. af hverju kryddi.
  • Bakaðu grjónin í 30–35 mínútur og hrærðu einu sinni um miðbik tímans en fylgstu með svo þau brenni ekki.

Skref2

  • Á meðan hrísgrjónin eru í ofninum er kjúklingurinn skorinn og svo steiktur á pönnu ásamt kryddinu.
  • Skerðu niður öll hráefnin fyrir salatið og settu í stóra skál.
  • Láttu kjúklinginn kólna örlítið áður en hann er settur út á salatið.
  • Taktu hrísgrjónin úr ofninum og kældu örlítið.

Skref3

  • Næst er sósan útbúin, öll innihaldsefnin eru sett í matvinnsluvél og blandað saman þar til sósan er orðin silkimjúk. Ég notaði töfrasprota.
  • Bættu kjúklingnum og stökkum hrísgrjónum ofan á salatið og að lokum er sósunni hellt yfir.

Næringargildi

  • Fyrir þau sem að telja macros fylgir skráning næringargilda með.
  • Næring í 100 g: Kolvetni: 6,5 g - Prótein: 13,5 g - Fita: 4,1 g - Trefjar: 0,7 g

Höfundur: Helga Magga