Einfalt og gott kjúklingasalat með avocado sem tekur enga stund að hræra saman. Salatið er einstaklega gott ofan á hrökkbrauð eða hverskyns kex og sem álegg á samloku. Snilld til að taka með sér sem nesti í vinnuna, í saumaklúbbinn eða í brunsið með fjölskyldunni um helgar.
| tilbúinn kjúklingur eða strimlar (með t.d. fajitas kryddi) | |
| rauðlaukur | |
| grísk jógúrt frá Gott í matinn | |
| avocado, vel þroskað | |
| safi úr límónu | |
| Salt | |
| Pipar | |
| Chilli |
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir