Menu
Kjúklingaréttur með ítölsku ívafi

Kjúklingaréttur með ítölsku ívafi

Það er svo gaman að prófa nýja kjúklingarétti. Rjómalagaðir og ofnbakaðir slíkir klikka hreinlega aldrei og hér er komin skemmtileg útfærsla af einum slíkum með ítölsku ívafi þar sem ljúffengur ítalskur smurostur er í aðalhlutverki.

Innihald

4 skammtar
kjúklingalæri (upplæri)
laukur
hvítlauksrif
ítalskur smurostur MS (300 g)
rjómi frá Gott í matinn
piccolo- eða kirsuberjatómatar
fersk basilíka
ólífuolía og smjör til steikingar
salt, pipar og kjúklingakrydd

Skref1

  • Hitið ofninn í 170°C.
  • Brúnið kjúklingalærin upp úr blöndu af ólífuolíu og smjöri við meðalháan hita.
  • Kryddið eftir smekk og brúnið vel á báðum hliðum, leggið næst í eldfast mót og útbúið sósuna.

Skref2

  • Saxið laukinn smátt og mýkið á pönnu upp úr smjöri og olíu. Kryddið með salti og pipar.
  • Rífið hvítlaukinn saman við laukinn og steikið stutta stund til viðbótar og hellið næst helmingi rjómans á pönnuna.
  • Bætið smurostinum næst saman við og hrærið þar til hann er bráðinn og bætið þá restinni af rjómanum út á og hrærið vel.

Skref3

  • Hellið sósunni yfir kjúklingalærin í fatinu, dreifið úr tómötunum yfir allt og bakið í ofni í um 25-30 mínútur.
  • Berið fram með ferskri basilíku.

Höfundur: Berglind Hreiðarsdóttir